1. tlb. 2007 3. árg.

Tímarit


Ábyrgðin sem við berum gagnvart öðru fólki

Regnbogabörn orðið sjálft er nú þegar orðið ákall, samnefnari fyrir hvatningu sem hljómað hefur skýrt um allt land.  Það hefur snert strengi í brjóstum okkar og náð að rjúfa þagnarmúr sem risið hefur allt of hátt á undanförnum áratugum.

Regnbogabörn orðið felur líka í sér fyrirheit um breytta hegðun, samstöðu almennings og áhrifafólks um að taka nú saman höndum og leggja grunndvöll að nýju hugarfari, hugarfari þar sem gildi fjölskyldulífs og vináttunnar verða leiðarstjörnur.

Þannig komst forseti okkar, Ólafur Ragnar Grímsson, að orði á stofnfundi samtakanna í Þjóðleikhúsinu, þann 16. nóvember 2002. Þetta voru orð að sönnu. Regnbogabörn hafa náð að vekja almenning til umhugsunar um þá þjáningu sem svo margir líða á degi hverjum vegna þess að þeir hafa verið beittir
ofbeldi í lífinu. Andlegt ofbeldi og ærumeiðingar gerast æ tíðari og ekki síst á öldum ljósvakans, harkalegri atlögur eru gerðar að náunganum og ekki síst þeim sem standa framarlega í viðskiptum og stjórnmálum. Samfélagið er alltaf að breytast og það er í okkar höndum að breyta því til hins betra en ekki til hins verra. Stundum stöndum við máttlaus og spyrjum okkur: En hvernig getum við hjálpað?

Lestu meira með því að smella hér

Regnbogabörn fjöldasamtök gegn einelti Mjósundi 10 - 220 Hafnarfirði