Um okkur

Saga


Regnbogabörn eru fjöldasamtök áhugafólks um eineltismál. Markmið samtakanna er meðal annars að gera börnum kleift að lifa án félagslegs áreitis og ofbeldis frá jafningjum sínum.

Upphafið að stofnun Regnbogabarna má rekja til Stefáns Karls Stefánssonar leikara sem sjálfur hefur reynslu af einelti sem þolandi, gerandi og áhorfandi. Fyrir nokkrum árum var hann beðinn um að ræða reynslu sína á fundi í grunnskóla í kjölfar þess að bæklingur um einelti var gefinn út. Hann lagði af stað og er enn á ferðinni og hefur nú haldið hundruð fyrirlestra, rætt við foreldra og börn, komið að fjölda eineltismála og talað um einelti í fjölmiðlum. Stefán hefur einnig oft verið kallaður til vegna sjálfsvígshugsana ungs fólks, sjálfsvígstilrauna og sjálfsvíga.Viðbrögðin við fyrirlestrum Stefáns hafa verið sterk. Greinilegt er jafnframt, á þeirri athygli og umtali sem starf Stefáns Karls hefur vakið, að fjöldi manns er tilbúinn til þess að leggja hönd á plóginn.

Á stofnfundi samtakanna í nóvember 2002 var kjörin sjö manna stjórn sem í umboði félagsmanna tekur að sér að móta starf samtakanna.

Stjórnin var skipuð eftir farandi aðilum:

Stefán Karl Stefánsson, leikari, stjórnarformaður
Jón Páll Hallgrímsson, meðferðarfulltrúi, varaformaður
Jón Adólf Guðjónsson, bankastjóri, gjaldkeri
Ragnheiður Arngrímsdóttir,flugmaður, ritari
Ellert Borgar Þorvaldsson, skólastjóri, meðstjórnandi
Eva María Jónsdóttir, dagskrárgerðarmaður, meðstjórnandi
Þorsteinn Jónsson, forstjóri, meðstjórnandi

Upphafið að stofnun Regnbogabarna má rekja til Stefáns Karls Stefánssonar leikara sem sjálfur hefur reynslu af einelti sem þolandi, gerandi og áhorfandi. Fyrir nokkrum árum var hann beðinn um að ræða reynslu sína á fundi í grunnskóla í kjölfar þess að bæklingur um einelti var gefinn út. Hann lagði af stað og er enn á ferðinni og hefur nú haldið hundruð fyrirlestra, rætt við foreldra og börn, komið að fjölda eineltismála og talað um einelti í fjölmiðlum.

Hlutverk samtakanna er að beina athyglinni að þeim vanda sem stafar af einelti og berjast gegn því og gera þannig börnum og fullorðnum kleift að lifa án neikvæðs áreitis og ofbeldis. Einnig að varðveita rétt barna til verndar.

Starfsemi Regnbogabarna beinist að því að vinna gegn einelti með ýmis konar forvarnarstarfi. Þetta er gert með kynningum í skólum og á vinnustöðum, útgáfu fræðsluefnis og að standa að sérverkefnum. Einnig skal stuðlað að umfjöllun um einelti og fræðslu um hvernig berjast má gegn því.

Um tíma var ráðinn framkvæmdastjóri og meðferðarfulltrúi í fullt starf til að sinna daglegum rekstri á skrifstofu en eftir því sem tímanum fleygði fram og fleiri tóku að leggja hönd á plóg eins og til að mynda Olweusarverkefnið sem byrjaði um líkt leyti og Regnbogabörn voru að hefja starfsemi sína, fór þörfin fyrir fasta starfskrafta þverrandi og áherlsa var einkum lögð á forvarna og fræðslustarf í skólum, auk ráðgjafaviðtala sem meðferðarfulltrúinn veitti endurgjaldslaust fyrir þá sem á þurftu að halda. Regnbogabörn greiddu launin en ekkert gjald var tekið af skjólstæðingum.

2004 - 2006 sátu eftirfarandi í stjórn Regnbogabarna:

Stefán Karl Stefánsson Formaður
Guðrún Ögmundsdóttir Varaformaður
Árni Stefánsson Gjaldkeri
Klara Hallgrímsdóttir Ritari
Valgeir Skagfjörð Meðstjórnandi

Sumarið 2007 var skipt um stjórn og var hún skipuð eftirfarandi:

Valgeir Skagfjörð, stjórnarformaður
Stefán Karl Stefánsson, varaformaður
Árni Stefánsson, gjaldkeri
Klara Hallgrímsdóttir, meðstjórnandi
Þorgrímur Þráinsson, meðstjórnandi
Björk Vilhelmsdóttir, meðstjórnandi

Ákveðið var að fara í gagngera endurskoðun og endurskipulagningu á samtökunum þar sem meðal annars Kolfinna Bustos frá Bandaríkjunum gerði úttekt á rekstrinum sem leiddi til þess að horfið var frá því að hafa fastan starfsmann á launum en þess í stað skyldi verja tekjum samtakanna til verkefna í þágu þolenda, gerenda og annarra í eineltismálum og standa fyrir námskeiðum ýmiss konar til að upplýsa og fræða.

Samtökin hafa gefið út tímarit tvisvar á ári en nú hefur það verið aflagt. Þess í stað skal vefsíða samtakanna tekin til gagngerrar endurnýjunnar og hún gerð meira aðlaðandi og gagnvirkari en hún hefur verið áður.

 

Regnbogabörn fjöldasamtök gegn einelti Mjósundi 10 - 220 Hafnarfirði