22. nóvember 2008

Kosin úr leik


Helga Margrét Guðmundsdóttir Verkefnastjóri hjá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra

Fyrir nokkrum árum komu nemendur úr Hagaskóla í Reykjavík fram í fjölmiðlum og sögðu frá einelti á netinu sem færi þannig fram að einhverjir taki sig saman og útiloki einn eða sendi sín á milli andstyggilegar athugasemdir og óhróður um ákveðinn einstakling.

Við höfum líka heyrt um einelti sem fer fram á  Myspace og mynda og bloggsíðum á borð við  Picturetrail og blog- central.is sem margir krakkar halda úti. Sumir hafa gestabók þar sem fólk getur komið með athugasemdir eða skráð sig.Vitað er um ógeðfellda leið til eineltis sem fer þannig fram að hópur gerir með sér samkomulag um að skoða ekki ákveðin myndaalbúm eða gestabækur og kjósa þannig viðkomandi einstakling úr leik.

MSN

Önnur aðferð tengist MSN samskiptaforritinu en þar geta hópar gert með sér samkomulag um að útiloka einstaklinga frá samskiptum sem þýðir í rauninni að vinalisti viðkomandi tæmist og hann getur ekki rætt við neinn á MSN, hann er úr leik. Síðan eru líka dæmi um að einstaklingar skrifi andstyggilegar athugasemdir í gestabækur eða undir myndir sem viðkomandi er með í myndaalbúminu sínu og hvetji aðra til að gera slíkt hið sama, sem gerir það að verkum að fórnarlambið situr eitt eftir með sárt ennið. Við getum spurt okkur hvað geri það að verkum að fólk hagi sér svona.

Allir sjá það

Í tengslum við framtak nemendanna úr Hagaskóla gaf Umboðsmaður barna út eftirfarandi yfirlýsingu.  Þú getur líka lent í Netinu, fjöldi krakka hefur lesið um sig niðrandi ummæli á Netinu og líður illa yfir því. Á síðasta ári sáum við svo auglýsingaherferð sem beindist að því að gera fólki grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir samskiptum á netinu eða bloggskrifum og fólki gerð grein fyrir því að allir geta séð það sem það lætur á netið. Um var að ræða herferð SÍA og samstarfsaðila (AUGA sjóðurinn) fyrir SAFT sem gangsett var í janúar 2007 (sjá saft.is).  Herferðin fjallaði um heilbrigða netnotkun undir yfirskriftinni: Gættu að hvað þú gerir á netinu - það sjá það allir.

Þar fengum við að spegla okkur í  hugsanlegum afleiðingum skrifa okkar í netheimum.Við þurfum að skoða okkur sjálf betur og setja okkur í spor þolenda eineltis. Hvort við sjálf getum verið aðili í hinum þögula hópi sem leggst á sveif með gerandanum. Við þurfum að skoða  hvernig það gerist að slíkt ójafnvægi myndast, þar sem sumir taka sér vald sem þeim hefur ekki verið veitt. Meirihlutinn fylgist svo aðgerðarlaus með og tekur þannig beinlínis þátt í ódæðinu. Kannski án þess að gera sér grein fyrir alvarleika málsins.

Vinsælt sjónvarpsefni

Stundum er eins og ákveðinn hópur leggist gegn einum aðila, án augljósrar ástæðu og upp úr þurru myndist hópur gegn einum. En hvernig gerist þetta og hverjar eru afleiðingarnar?Oft er sagt að það læri börnin sem fyrir þeim er haft og við ættum ekki að verða hissa þó börnin hermi eftir því sem þau sjá í vinsælum sjónvarpsþáttum.Ýmsir þættir bæði erlendir og innlendir ganga út á að kjósa úr leik.

Hvernig var það með þáttinn Bandið hans Bubba eða Idol-þættina sem margar fjölskyldur máttu alls ekki missa af og tóku virkan þátt í. Var ekki sífellt verið að kjósa fólk úr leik og hverjar voru leikreglurnar eða viðmiðin?

Unga fólkið kepptist við að komast að og gekkst sjálfviljugt undir þá raun að láta kjósa sig úr leik. Þjóðin kvað upp sinn dóm og menn voru viðstöðulaust kosnir úr leik og ekki nóg með það heldur fylgdu því óforskammaðar athugasemdir stjórnenda þar sem unga fólkið fékk það óþvegið í beinni.    Þetta var ekki gott! Þú ert ööö...murlegur! Þetta var ömurlegt!!

Leikur?

Í þessu sambandi koma upp í hugann ýmsir aðrir vinsælir sjónvarpsþættir sem beinlínis ganga út á það að kjósa einn í einu úr hópnum úr leik í beinni og menn eru jarðaðir á staðnum eða reknir heim.

Stundum er nokkuð óljóst út frá hverju er gengið eða hvað þarf til en þessir sjónvarpsþættir eru mjög vinsælir meðal barna og unglinga.

Stundum eru það sterkustu eða hæfileikaríkustu einstaklingarnir sem eru einmitt kosnir úr leik eins og t.d. í sjónvarpsþættinum Survivor. Menn sameinast um að kjósa þá úr leik svo þeir fái ekki stóra vinninginn.

Hvað er það þá sem gildir til að vinna leikinn og út frá hverju er gengið?

Í þessum þáttum er fólki att saman til orrustu. Ef við veltum fyrir okkur siðferðinu eða gildismatinu sem kemur fram í þessum leikjum eða þáttum sem börn okkar sitja með andakt yfir gætum við í framhaldinu velt því fyrir okkur hvort og hvaða áhrif það getur haft á hegðun og líðan þeirra sem eru að vaxa úr grasi á Íslandi í dag.

Munu hetjudáðir af þessu tagi eða svona uppeldisskilyrði skila okkur skapandi einstaklingum sem líklegir eru til að þróa lýðræðið áfram sem alþingismenn, ábyrgir foreldrar, kennarar, nemendur, viðskiptajöfrar og vinnuveitendur? Svari nú hver fyrir sig.

Stöðug fræðsla

Til þess að vinna gegn eineltisvandanum þurfum við stöðugt að halda uppi fræðslu um hvað einelti er, hvar það fer helst fram og hvernig það lýsir sér á hverjum tíma.

Í þessu sambandi er mikilvægt að trúnaður myndist milli nemenda, foreldra og skólans. Til að það náist þarf að auka samveru og samstarf þessara aðila. Fræðsla, miðlun upplýsinga og aukin samskipti eru forsenda fyrir því að sá trúnaður myndist.

Mikilvægt er einnig að viðkomandi aðilar temji sér jákvætt viðhorf  í garð hvors annars, skoði saman hvað er í gangi hverju sinni til að geta brugðist við eineltinu á farsælan hátt og einnig til að bregðast ekki trúnaði barnanna.      

 


Regnbogabörn fjöldasamtök gegn einelti Mjósundi 10 - 220 Hafnarfirđi