22. október 2008

Einelti er dauđans alvara


eftir Ingibjörgu Baldursdóttur

Þann 21. júní síðastliðinn gafst sonur minn, Lárus Stefán Þráinsson upp á lífinu, brotinn eftir áralangar misþyrmingar eineltis. Hann var einungis 21 árs gamall. Hann fékk ekki að njóta tilveruréttar síns sem barn og fannst hann vera utanvelta allstaðar. Hann passaði hvergi inn.

Ég get ekki hugsað mér að nokkur þurfi að ganga í gegnum það sama og ég og sonur minn gengum í gegnum á sínum tíma. Það að standa í þeim sporum að eineltisofbeldi valdi barni manns óhamingju og einangrun á ekki að líðast og að hlutirnir geti gengið svona í mörg ár er ófyrirgefnanlegt.

Líf mitt hrundi og gleðin dó þegar ég fékk þær skelfilegu fréttir að barnið mitt, ungi maðurinn minn, væri dáinn. Baráttan við afleiðingar eineltisins var töpuð. Mín fyrsta hugsun var að ég vildi sjálf deyja, að ég vildi komast til hans, að ég yrði að fá að hugga hann, halda honum í fangi mér og umvefja hann ást og umhyggju. Hann þyrfti á mér að halda og hvernig í ósköpunum skyldi yngri syni mínum líða?

Ég gat ekkert gert nema að skjálfa, stjörf af áfalli og yfirkomin af sorg. Yngri sonur minn, eldri systir hans, fjölskyldan og vinirnir öll stórslösuð á sálinni og í hjartanu. Lárus gafst upp á lífinu. Svo brotinn var hann eftir eineltið sem hann varð fyrir. Þunglyndi var afleiðingin og það er dauðans alvara. Sjálfsmynd hans þessa duglega, hugrakka, samúðarfulla, umhyggjusama, skilningsríka, skemmtilega og fallega unga manns var svo skemmd að þunglyndið kæfði hann. Hann sá bara svartnættið í sínu þunglyndi, þunglyndið tók völdin af honum. Þunglyndið varð skynseminni og lífsviljanum yfirsterkara.

Ekkert breytir því í dag. Það vafðist samt aldrei fyrir mér og fjölskyldunni þegar hann dó hvert væri framhaldið hjá mér. Baráttan gegn einelti hófst hjá okkur saman og nú held ég áfram með son minn í anda mér við hægri hönd og fjölskyldu og vini við þá vinstri.
Það vafðist heldur ekki fyrir mér hvernig ég ætlaði í þessa eineltisbaráttu og hér er ég nú að kynna hana fyrir ykkur. Ykkur sem skiptið okkur svo miklu máli í því Þjóðarátaki gegn einelti sem við ætlum að hefja með ykkar hjálp. Það kom aldrei til greina að þegja þessa skelfilegu reynslu í hel.

Það þarf að vinna gegn því þjóðfélagslega meini og broti á mannréttindum sem eineltisofbeldi er og um leið að draga úr þeim skaðlegu áhrifum sem afleiðingar eineltis hafa á allt þjóðarbúið.
Afleiðingar eineltis eru veikindi á sál og líkama hjá heilu fjölskyldunum og kostar heilbrigðiskerfið, atvinnulífið, félagsmálakerfið og menntakerfið árlega stórfé.
Það þarf að brjóta niður múra þagnarinnar, skammarinnar, varnar- og ráðaleysis. Og byggja upp brotna sál, virðingu og umhyggju og bjóða betra geðheilbrigði.
Í kjölfar dauða Lárusar hefur orðið mikil umræða um einelti í fjölmiðlum og sem náð hefur að fanga athygli fólks um allt land. Til okkar hefur leitað mikill fjöldi fólks með svipaða sögu að segja og við. Þetta fólk á ýmist börn sem glíma við þetta þjóðarmein eða það hefur sjálft farið illa út úr einelti og oftast ekki náð að vinna sig út úr því.
Við höfum nú hrundið af stað þjóðarátaki gegn einelti með því að stofna samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda. Bera þau nafnið Liðsmenn Jerico.

Við finnum fyrir miklum meðbyr með stofnun samtakanna enda virðist þörfin vera mikil fyrir þolendur á öllum aldri sem og aðstandendur. Það er eins og fólk sé betur að uppgötva hvað einelti er í raun alvarlegt enda markar einelti fólk til lífstíðar og er oft orsök heilsufarslegra vandamála í mörg ár eftir að eineltinu líkur.
Það er algjörlega óásættanlegt að fólk þurfi að upplifa svo mikla uppgjöf barna sinna á samfélaginu vegna áralangra byrða eineltis og félagslegs vanmáttar eða einangrunar. Því miður eru þeir margir þolendurnir sem taka það sorglega skref frá þjáningu sinni sem sonur minn tók. Flestir þolendur lifa þó eineltið af en líf þeirra verður aldrei samt á eftir. Flestir glíma við þunglyndi, skömm, reiði og félagslegt óöryggi í mörg ár og margir jafna sig aldrei; líf þeirra er markað til frambúðar.
Því miður fer þeim þolendum fjölgandi sem kjósa að deyfa sársauka sinn í vímuefnum og eru þeir auðveld bráð fíkniefna.
Þegar rætt er um forvarnir í vímuvörnum þá finnst okkur oft skorta skilning á því að vímuefnanotkun getur verið afleiðing annarra vandamála en ekki alltaf orsök þeirra.
Þegar við förum að nálgast vímuefnavandann sem hugsanlega afleiðingu vandamála er meiri líkur á því að við áttum okkur betur á orsökunum þess að börnin okkar lenda í klóm vímuefna.

Einelti gerir ekki mannamun, það spyr ekki um stétt eða stöðu; það getur hitt okkur öll.  Það skiptir ekki máli hvort þú ert ríkur eða fátækur, hvítur, svartur eða gulur, lítill eða stór, heilbrigður eða fatlaður. Næsta fórnarlamb gæti orðið barnið þitt, systkini þitt, foreldrar þínir, nákominn ættingi þinn, vinur þinn eða vinnufélagi. Við getum breytt þessu til betri vegar en það þarf að eyða fordómum með því að draga vandamálið fram í dagsljósið og fræða fólk um meinið.

Tilgangur og markmið með stofnun Liðsmanna Jerico

Ráðgjöf-Upplýsingar-Fræðsla Er að vinna fyrir fullorðna fólkið. Með því að styðja við bakið á foreldrum eineltisbarna og uppkomnum þolendum, vera upplýsingamiðstöð / þjónustumiðstöð. Við viljum tryggja að foreldrar standi ekki einir, að þeir hafi ákveðinn stað að leita til. Að allir þolendur eineltis, hafi stað til að leita á. Er að vinna sem þrýstihópur á stjórnvöld og yfirvöld, hugarfars- og viðhorfabreytingum og auknum skilningi á alvarleika eineltis í þjóðfélaginu. Fyrir þeim breytingum þar sem þörf er á innan skólakerfisins. Eins og t.d. að fylgjast með sýnileika eineltisforvarnaáætlana skólanna og hvort eineltisteymi séu starfandi í skólum, skoða aðgengi fólks að eineltisforvarnastefnu skólanna. Hversu góð er hún. Að þolendur eineltisofbeldis eignist málsvara sem þeir hafa ekki átt. Það er ekki skömm, að þora að koma fram. Það er hetjuskapur. Persónulegur sigur þolanda eineltis. Það er bláköld staðreynd að einelti drepur og það hjálpar engum að þegja alvarleika eineltis í hel og afneita vandanum. Við ætlum að vera sýnileg, minna stöðugt á okkur. Með öllum ráðum, leita allra leiða. Nota alla fjölmiðla, vefmiðla og koma í framkvæmd erindum sem minna stöðugt á okkur Liðsmenn Jerico.Framtíðarsýn Liðsmanna Jerico:

Við viljum stuðla að meiri fræðslu um eineltismál og hvernig hægt sé að sporna við einelti og koma í veg fyrir að það nái að fá að verða til, að huga enn betur að því byggja upp sjálfstraust hjá öllum börnum, öllum unglingum, öllu fólki.

Framhaldsskóli, atvinnulífið eða háskólanám bíður og þar byrja brotnu sálirnar á nýjum kafla í lífinu dauðkvíðnar fyrir því hvernig þeim verði tekið, hvort að á nýja staðnum séu gamlir kvalarar, hvort að þeir geti þetta.

Fullorðinn þolandinn fer alveg jafnilla út úr einelti og barn, ef ekki verr, því að hann hefur engan til að berjast fyrir sig. Hann er fangi í einangrun, reiði og skömm, algjörlega bjargarlaus.

Veikindin verða alvarlegri, fjarvera úr námi og vinnu vegna vanlíðunar. Námsárangur slaknar, vinnueinbeiting versnar, mætingin slaknar. Þetta kemur svo niður á námi, námslánum, starfinu, laununum og sálinni.

Tímar hjá sálfræðingum og geðlæknum, heilurum og allt sem hægt er að láta sér detta í hug til bóta fyrir þolandann kostar stórfé.

Þolandinn á jafnvel ekki eftir peninga til að borga fyrir hjálpina eða lyfin sem bjóðast.

Hvernig er hægt að komast hjá því að verða þunglyndur, kvíðinn og félagsfælinn? Geðheilbrigði er í veði og ungu fólki er að fjölga hratt sem fær öryrkjamat vegna þess að það treystir sé hreinlega ekki út úr húsi.

Alvarlegasta afleiðing eineltis er að fólk tekur líf sitt svo það losni undan kvölum sínum og niðurbroti. Það gefst upp á lífinu, gefst upp á að reyna að falla inn í þjóðfélagið.

Eineltisofbeldi þarf að taka föstum tökum og skilaboðin úti í þjóðfélaginu   þurfa að vera skýr. Einelti er ofbeldi, ofbeldi er glæpur.

Gerendur í eineltismálum leiðast oft út í aðra glæpi og önnur afbrot síðar á ævinni.

Fræðslan ætti að byrja í leikskólum landsins því þetta er stígvaxandi vandamál, sem á að taka á núna og ekki seinna en strax.

Lokaorð

Ég trúi því og treysti að við getum tekist á við eineltið og ég vona af öllu mínu hjarta og allri minni sál að við getum sigrast á því.

Ég trúi því að við getum skapað börnunum okkar betra umhverfi, þar sem hver og einn fær að vera hann sjálfur, á eigin forsendum, hamingjusamur og í friði.

Ég trúi því og treysti að uppkomnir þolendur eineltis geti aftur öðlast trú og traust á samfélagið sem við byggjum.

Ég trúi því að við getum boðið öllum betra líf. Opnum hjarta okkar og sál fyrir þolendum eineltisofbeldis og brjótum niður múra þagnar og skammar. Breytum þjóðfélagi okkar til betri vegar með mannlegri og heilbrigðari samskiptum og sýnum samhug og samstöðu.

Jerico er barnið mitt. Stofnun Liðsmanna Jerico er ást mín til þess og allt mitt starf í nafni Liðsmanna Jerico er unnið af kærleika og umhyggju, Jerico til heiðurs.

Við ætlum að opna vefsíðu; www.jerico.is  netfangið er lidsmenn@jerico.is,

Stofnendur Liðsmanna Jerico.
Ingibjörg Helga Baldursdóttir, formaður.
Þráinn Lárusson, gjaldkeri.  
Vanda Sigurgeirsdóttir, meðstjórnandi.
Þóra Sigurðardóttir, meðstjórnandi.
Dagný Baldursdóttir, varamaður í stjórn.
Valgeir Skagfjörð, meðstjórnandi 
Elísabet Sóley Stefánsdóttir
Bergljót Snorradóttir, meðstjórnandi.
Jónas Helgi Eyjólfsson, varaformaður.

 


10. október 2008

Olweus í leikskólanum


eftir Írisi Ingþórsdóttur, aðstoðarleikskólastjóra og verkefnastjóra.

Einelti í leikskólum hefur lítið verið rannsakað hér á landi.  Við höfðum lesið um Olweusar áætlun gegn einelti og langaði því að skoða hvernig hægt væri að vinna með hana í leikskólanum okkar, Eyrarskjóli á Ísafirði. Að okkar mati er mjög nauðsynlegt að starfsfólk leikskóla hafi vitneskju um hvernig eigi að bregðast við einelti eða öðrum ágreiningsvanda og sporna við því. Því fyrr sem tekið er á því þeim mun líklegra er að við komum í veg fyrir þjáningar og jafnvel að börn og unglingar lendi á glapstigum.

Olweus talar um að vinna með samfélagið í heild sinni og því fannst okkur nauðsynlegt að leikskólinn væri með virka eineltisáætlun, sem væri svo virk áfram upp í grunnskóla þannig að börnin þekktu áætlunina þegar þau kæmu í grunnskólann.

Er einelti í leikskólum?

Einelti getur átt sér stað í leikskólum eins og á öðrum skólastigum og fylgt barni áfram upp í grunnskóla ef ekkert er aðhafst. Fyrstu ár barnsins til að mynda vinatengsl eru í leikskólanum. Það getur skipt sköpum að barnið nái þessum tengslum og fái hjálp til þess á meðan það er í leikskóla. Það getur breytt miklu fyrir barn sem er líklegur þolandi í eineltismáli að eiga traustan og góðan vin.  Börn í leikskólum eru í öruggu umhverfi og því kjörið að byrja að vinna með einelti þar sem hópurinn er náinn, í litlum einingum auk þess sem foreldratengsl í leikskólum eru oft sterkari en á öðrum skólastigum.

Framkvæmd

Forvarnir og skilgreiningar eru hluti af því sem leikskólinn leggur mikla áherslu á í eineltisáætlun Olweusar. Við höfum hugsað okkur að okkar vinna í leikskólanum verði mest fyrirbyggjandi vinna, það er að virkja þann hóp sem stendur hjá og aðhefst ekkert þegar einelti á sér stað, að sá hópur verði virkur og segi frá.

Til þess að skýra þetta betur út fyrir börnunum notum við mikið eineltishringinn þannig að börnin geti staðsett sig á myndinni, en öll ætlum við að vera ,,græni kallinn sá sem er verndari og góður vinur. Við tölum líka um það á vinafundum að  við erum ekki öll eins, allir hafi sinn tilverurétt og við hjálpum þeim sem eru einir, eflum umburðarlyndi, vináttu og virðingu fyrir einstaklingnum.

Eineltisáætlunin á að vera hluti af hefðbundnu starfi leikskólans. Allir kennarar þekkja Olweusar áætlunina og vita hvernig á að bregðast við ef upp kemur ágreiningur. Við störfum í anda Hjallastefnunnar og erum því með kynjaskiptan leikskóla.

Okkur fannst eineltisáætlun Olweusar henta vel stefnu leikskólans þar sem hver kennari hefur sinn hóp sem gerir honum auðveldara að hafa yfirsýn yfir sinn nemendahóp. Bæði til þess að sjá hverjir það eru sem halda sig til hlés og eru því auðvelt skotmark og þau börn sem eiga það til að ráðskast með aðra. Allir í hópnum er á sama aldri og eiga vinahóp af gagnstæðu kyni. Þessir vinahópar hittast reglulega og eru með vinafundi sem eru sambærilegir bekkjarfundum í grunnskólum. Börnin eiga því að þekkja bekkjarfundafyrirkomulag þegar þau fara í grunnskóla. Börnin gera sínar vinareglur með kennurunum sínum og taka þannig þátt í að skapa umhverfi þar sem ekki þrífst einelti.

Við vinnum eftir áætluninni eins grunnskólinn að því leyti að við höfum umræðuhóp, lykilmenn og stýrihóp. Við leggjum einnig fyrir kannanir sem við útfærðum sjálfar út frá könnununni sem er notuð í grunnskólanum, með samþykki frá framkvæmdarstjóra Olweus á Íslandi, Þorláks Helga Helgasonar. Við tökum elsta árganginn í stutt spurningarviðtöl, tvo elstu í tengslakönnun og þrír elstu gera vinamynd (ég og vinir mínir í leikskólanum).

Olweus og útikennsla

Að ræða saman, efla samkennd og þjálfa góð samskipti eru mikilvægir þættir ef um er að ræða ágreiningsmál. Þetta er líka lykilatriði í Olweusaráætluninni til að stuðla að góðum bekkjaranda og skólabrag. Til þess að börn skilji það þurfa þau að læra að hlusta á hvert annað.  

Það má til dæmis efla samkennd með því að fara í ferðalög og þannig höfum við fléttað eineltisáætlunina við útikennslu sem við höfum einnig verið að þróa hjá okkur. Vinahóparnir fara þá saman í útikennslu og halda vinastund úti. Þar skapast góður vettvangur til þess að kenna börnum að sýna hjálpsemi og umhyggju gagnvart einstökum nemendum og hópnum í heild. Við höfum eldstæði í garðinum okkar þar sem við kveikjum eld einu sinni í mánuði og hitum okkur vinakakó, allur leikskólinn saman. Þetta hefur gefist mjög vel og er mjög notalegt stund.

Hvað kom mest á óvart?

Við lítum á okkur sem frumkvöðla í Olweusaráætluninni á Íslandi (og kannski í heiminum) og erum stoltar af því. Nú höfum við unnið með eineltisáætlunina í nokkrar vikur og það sem kom okkur mest á óvart er hversu vel börnin skilja eineltishringinn. Hann er mjög skýr og myndrænn þannig að þau eiga auðvelt með að yfirfæra aðstæður sem þau lenda í, eða sögur úr bókum yfir á eineltishringinn.  Einnig hvað það er gott fyrir okkur sem kennara að vera betur vakandi fyrir samskiptum barnanna og almennt í lífinu.


Regnbogabörn fjöldasamtök gegn einelti Mjósundi 10 - 220 Hafnarfirđi