19. maí 2009

Brugðist verði við einelti


Innlent | mbl.is | 19.5.2009 | 23:17

Gerð verður úttekt á viðbragðsáætlun borgarstofnana gegn einelti. Markmiðið er meðal annars að ekkert barn eða unglingur í Reykjavík eigi að þola einelti. Tillaga Samfylkingarinnar þessa efnis var samþykkt í borgarstjórn í kvöld.

Í samþykktinni er kveðið á um að horft verði til skóla, leikskóla, félagsmiðstöðva, frístundaheimila og annarra starfsstöðva Reykjavíkurborgar. Mannréttingastjóra og mannauðsstjóra er falið að skila tillögum til borgarráðs.

Tillögurnar eiga að miða að markmiðum forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar sem kveður á um að ekkert barn eða unglingur í Reykjavík eigi að þola einelti. Að allar borgarstofnanir hafi virkar viðbragðsáætlanir. Þá á að móta ferli og viðbrögð borgarinnar þegar eineltisáætlanir stofnana borgarinnar bregðast.

„Samkvæmt nýjustu foreldrakönnun menntasviðs segjast 21% foreldra barn sitt hafa orðið fyrir einelti í skólanum, 36% foreldra voru frekar eða mjög ósátt við hvernig tekið var á málinu. Allir foreldrar voru einnig spurðir hvort þeir vissu til þess að komið hefði upp eineltismál í skóla barna þeirra sem þeir myndu eftir - tæp 58% þeirra svöruðu því játandi, 41% þeirra sögðu að fljótt og vel hefði verið tekið á málinu, 36% sögðu „vel en ekki nógu fljótt“ og 22,6% sögðu einfaldlega að skólinn hefði ekki tekið á málinu,“ sagði Oddný Sturludóttir, borgarráðsfulltrúi Samfylkingarinnar, á fundinum.

„Í skólastefnu Reykjavíkurborgar er kveðið á um að einelti skuli ekki liðið í skólum borgarinnar. Allir skólar setja sér eineltisáætlun eða eru með hina viðurkenndu áætlun OLWEUS. Samkvæmt foreldrakönnun er misbrestur á því að þær séu nægilega virkar og því er mikilvægt að þriðji aðili, á borð við mannréttindastjóra, leggi kalt mat á það hvort viðbragðsáætlanir starfsstöðva borgarinnar bera árangur. Samþykkt tillögunnar er áfangasigur í baráttunni gegn einelti. Þess ber að geta að í öllum rannsóknum á einelti kemur í ljós að það beinist mest gegn börnum foreldra sem eru í lægri tekjuhópum. Því er full ástæða til að skerpa á stefnu borgarinnar og herða á viðbragðsáætlunum gegn einelti nú þegar sýnt er að þrengist um hjá mörgum barnafjölskyldum í borginni,“ sagði Oddný.


 

 


18. maí 2009

Langholtsskóli taki ekki nóg á einelti


Fréttablaðið, 18. maí. 2009 05:00 visir.is

Foreldrar í Langholtsskóla hafa áhyggjur af því að ekki sé tekið nógu vel á eineltismálum sem komi upp innan veggja skólans og tala um óvirkni í skólanum sem hafi viðgengist lengi.Fréttablaðið/anton Megn óánægja er meðal hóps foreldra í Langholtsskóla með viðbrögð skólans þegar eineltismál koma upp. Unnur Ragnheiður Hauksdóttir og Tina Maria Johnson eiga báðar börn í skólanum sem hafa orðið fyrir einelti. Þeim þykir skólinn ekki taka nógu hratt og vel á eineltismálum.

„Dóttir mín talaði um að það væri stúlka í bekknum sem væri mikið að stríða henni í haust og eftir áramót fór þetta að ágerast. Dóttir mín er frekar lágvaxin og stúlkan var til dæmis galandi og gólandi yfir alla í bekknum að hún væri dvergur. Kennarinn lofaði að tala við yfirvöld skólans og því hélt ég að þetta væri í einhverjum farvegi," segir Unnur.
„Síðan fór þetta að ágerast og ég gerði mér ekki grein fyrir að þetta væri farið að dreifast um hverfið. Dóttur minni var farið að líða svo illa að ég tók hana úr skólanum um tíma. Við foreldarnir fórum með hana út úr bænum og fórum svo niður í skóla að ræða við skólastjórann. Mér fannst óskaplega lítið gert úr þessu hjá honum," segir Unnur.

„Hann fór að tína eitt og eitt barn út úr bekknum til að tala við án vitundar foreldra en foreldrarnir vita ekki af þessu nema þeir sem ég hef talað við. Skólastjórinn hélt að með því að gerandinn kæmi til okkar og bæðist afsökunar þá væri málið búið. Að því er virðist átti ekki meira að gerast. Nú er þetta afgreitt mál en ég er ekki sátt við það. Ég vil til dæmis að stelpan fái sálfræðiaðstoð," segir hún og telur óvirknina í skólanum hafa viðgengist lengi.

Tina Maria á tvo drengi, sem báðir eru eða hafa verið í Langholtsskóla og hafa orðið fyrir einelti. Hún er mjög reið yfir því hversu lítið er tekið á eineltismálum í skólanum.

Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri hafnar því að slælega sé tekið á eineltismálum í skólanum. Hann bendir á að skólinn hafi tekið upp Olveusar-verkefnið fyrir nokkrum árum og segir að farið sé eftir þeirri aðgerðaáætlun í hvívetna. Hann vill ekki ræða einstök mál sem hafa komið upp innan skólans.

Fjóla Íris Stefánsdóttir, formaður Foreldrafélags Langholtsskóla, segist ekki hafa heyrt af alvarlegum eineltismálum í Langholtsskóla upp á síðkastið. Hún segir að ástandið hafi batnað mikið eftir að skólinn hafi tekið upp Olveusar-verkefnið fyrir nokkrum árum.
ghs@frettabladid.is


8. maí 2009

Ekki lengur unnt að senda nafnlaus SMS hjá Símanum


Innlent | mbl.is | 8.5.2009 | 17:00

Frá og með deginum í dag verður ekki unnt að senda nafnlaus SMS skilaboð af heimasíðu  Símans, heldur verða öll SMS skilaboð auðkennd með símanúmeri sendanda. Tilgangurinn er að auka öryggi við notkun SMS skilaboða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum.

„Einungis viðskiptavinir Símans munu eftirleiðis geta nýtt sér Vef-SMS og þá eingöngu með því að auðkenna sig með símanúmeri.  Viðtakandi SMS-skilaboða veit því ávallt hver sendandinn er,“ segir í tilkynningunni.

„Þess eru dæmi að þjónusta á borð við auðkennislaus SMS hafi verið misnotuð í viðskiptum með fíkniefni sem og í eineltismálum. Síminn hefur átt í góðri  samvinnu við SAFT,  Vakningarátaki um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi, sem fagnar þessari ákvörðun.  SAFT skilgreinir rafrænt einelti líkt og annað einelti, það er þegar einstaklingur verður fyrir endurteknu neikvæðu áreiti frá öðrum einstaklingi eða einstaklingum og á erfitt með að verjast því. Ein leið rafræns eineltis er þegar nafnlaus SMS eru notuð til að koma niðrandi og oft og tíðum meiðandi upplýsingum um einstakling á framfæri,“ segir ennfremur.

Nánar á vef Símans.


 


Regnbogabörn fjöldasamtök gegn einelti Mjósundi 10 - 220 Hafnarfirði