7. september 2010
Ýma fer í alla grunnskóla landsins.
Nú eru allir grunnskólar landsins að fá í hendurnar litabókina um Ýmu tröllastelpu ,,Ég vil fá að vera ég sjálf“ sem er ætluð öllum 6 ára börnum á Íslandi. Bókin er gefin út af Prentmeti í samstarfi við Olweusarverkefnið gegn einelti og samtökin Regnbogabörn. Bókin er gjöf frá Prentmeti og höfundur bókarinnar er Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir annar eigandi og starfandi stjórnarformaður Prentmets. Tilgangurinnn er fyrst og fremst að vekja alla til umhugsunar um hve mikilvægt það er að öll börn þori að vera – og geti verið – þau sjálf. Einnig að þau njóti sín í leik og starfi á eigin forsendum.
Síðastliðinn vetur var send út könnun til allra grunnskóla landsins þar sem kennarar 1. bekkjar voru beðnir um að taka þátt og miðla reynslu sinni af kennsluefninu um Ýmu tröllastelpu. Þátttakan var mjög góð og niðurstöður sýna að almennt er efnið notað í kennslustundum eins og lífsleikni og á bekkjarfundum. Eineltishringurinn er mikið notaður í umræðunni um Ýmu. Efnið hjálpar nemendum að setja sig í spor annarra og er gott umræðuefni um líðan í bekknum, gott viðfangsefni um fjölmenningu og vel til þess fallið að ræða það að engir tveir eru eins. Þá er bókin skemmtilegt ævintýri og hægt er að lita og vinna með hana.
Við sem erum fullorðin berum mikla ábyrgð á velferð barnanna. Umræðan í bekknum um Ýmu vonum við að styrki kennara til að axla betur þá ábyrgð. Ýma er einskonar tákngervingur fyrir markmið og tilgang þeirra sem berjast gegn einelti. Hún fer aðeins fram á að vera hún sjálf, sama hvað aðrir segja um hana. Aðferðafræði Ýmuverkefnisins og Olweusarverkefnisins á erindi alstaðar í samfélaginu bæði í skólakerfinu öllu ásamt vinnustöðum. Okkur öllum þarf að líða vel í umhverfi okkar svo að við náum að blómstra og sýna sem mestan árangur í leik og starfi.
Nú eru allir grunnskólar landsins að fá í hendurnar litabókina um Ýmu tröllastelpu ,,Ég vil fá að vera ég sjálf“ sem er ætluð öllum 6 ára börnum á Íslandi. Bókin er gefin út af Prentmeti í samstarfi við Olweusarverkefnið gegn einelti og samtökin Regnbogabörn. Bókin er gjöf frá Prentmeti og höfundur bókarinnar er Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir annar eigandi og starfandi stjórnarformaður Prentmets. Tilgangurinnn er fyrst og fremst að vekja alla til umhugsunar um hve mikilvægt það er að öll börn þori að vera, og geti verið, þau sjálf. Einnig að þau njóti sín í leik og starfi á eigin forsendum.