Ráð til foreldra gerenda eineltis


Fyrstu viðbrögð þín eru líklega vantrú, að sonur þinn eða dóttir séu ásökuð um að leggja aðra í einelti. Þú skalt búast við því að barnið þitt neiti.

En áður en þú vísar málinu frá sem rakalausum þvættingi, skaltu hlusta á það sem skólinn hefur að segja. Foreldrar þolendanna kvarta sjaldnast fyrst í stað, vanlíðan barna þeirra á sér yfirleitt einhverja sögu. Stundum þorir barnið ekki að mæta í skólann eða hefur þurft læknishjálp vegna eineltisins.

Þú verður að taka alvarlega það sem skólinn segir og vinna með fagfólki skólans að viðunandi lausn. Það kemur fyrir að nemendur eru ranglega ásakaðir um að leggja aðra í einelti en gagnger athugun ætti að leiða hið sanna í ljós.

Skólayfirvöld hafa leyfi til að grípa til ýmissa aðgerða svo sem, að gefa viðvörun, láta nemendur sitja eftir, vísa þeim tímabundið úr skóla eða finna nemandanum skólavist annarsstaðar.

Ef að barnið þitt hefur beitt aðra ofbeldi, sent rætin SMS-skilaboð, gert símaat, eða krafist peninga, þá ættu foreldrar fórnarlambsins að kæra til lögreglunnar, ekki síst ef gerandinn er sakhæfur.

Það gæti verið gagnlegt fyrir þig að biðja um stefnu skólans gegn einelti svo að þú getir farið í gegnum málið með barninu þínu.

 
 
 

Regnbogabörn fjöldasamtök gegn einelti Mjósundi 10 - 220 Hafnarfirði