Merki um einelti

Þolandi


Það er ekkert eitt sem segir hver verður fyrir einelti eða framkvæmir. Gott er að hafa í huga punkta sem benda til þess og þá að vera enn meira vakandi því sjaldnast segja fórnalömbin frá og hvað þá gerendur.

Þolandi

  • Oft fara börn að sýna meiri ótta af félagslegum aðstæðum og bresta auðveldlega í grát við mótlæti
  • Léleg sjálfsmynd
  • Oft undir meðallagi hvað varðar námsárangur
  • Oft finna þau vini sem eru yngri
  • Neita jafnvel að fara í skólann
  • Kvíði gagnvart ferðum í og úr skólum, biðja foreldra um far í skólann og heimta að vera sótt
  • Sýnir hrakandi afköstu í vinnu og verri framistöðu í skóla
  • Endurteknar martraðir og friðlaus svefn
  • Skapsveiflur og þunglyndi
  • Einangrun
  • Óútskýranleg sár og marblettir
  • Eigna missir s.s. föt hverfa og bækur og aðrar eignir skemmdar
  • Óöryggi í  líkams tjáningu/beitingu t.d. niðurlútur, klaufalegur/vandræðalegur gangur
  • Tíð smávægileg veikindi, sérstaklega hausverkir og magaverkir
  • Bleyta rúmið
  • Hættir að vera með gömlu vinunum
  • Vilja helst halda sig heima
  • Árásagirni gagnvart systkynum
  • Kvíði og áhyggjur

 

Regnbogabörn fjöldasamtök gegn einelti Mjósundi 10 - 220 Hafnarfirði